föstudagur, 18. maí 2007

I Just Can´t Get Enough

Þessir menn sem mæta aldrei saman í viðtöl og eiga í verulegum erfiðleikum með tjáskipti innan hljómsveitarinnar. Halda áfram á einhvern hátt að galdra fram frábæra tónlist ár eftir ár, plötu eftir plötu. Ég mæri þá og mælist með að lesendur þessarar síðu, þeir fjölmörgu, kynni sér þetta band út í hörgul. Þeir eru betri en Justin Timberlake og þeir eru betri (finnst mér) en Björk. Hins vegar er Sigurrós uppáhalds hljómsveit Dave Gahan, söngvara Depeche Mode og hann segir Sigurrós hafi með sinni tónlist hjálpað honum að ná betri tökum á andlegri líðan sinni. Til hamingju Ísland. Hlustið. Þið verðið ekki fyrir vonbrigðum ef þið gefið hljómsveitinni tækifæri. Engin vonbrigði.









2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Varla betri en Björk, það er nú erfitt.

Nafnlaus sagði...

Kannski asnalegt að segja að þessi og hinn sé betri en einhver annar. Allt snýst þetta víst um smekk. Kv, Svanur.

Ps: Er ekki síðasta prófið í dag?