laugardagur, 23. mars 2013

Orðsending frá mjög góðum manni ...


I know it seems like we play a lot of old songs, but the truth is, there's a lot more old songs than there are new songs, so just keep listening, and thanks for the note. (B. Dylan, 2006)

Ástæðan til þess að ég hef að mestu látið hreinræktuð „nútímaljóð“ í friði er eingöngu sú, að ég hef talið æskilegt að yngri menn en ég fáist við að þýða þann skáldskap sem efstur er á baugi um sinn, og virðist mér óþarft að rökstyðja það nánar. Nógu margar eru eyðurnar frá fyrri tímum. (H. Hálfdanarson, 1991)

miðvikudagur, 13. mars 2013

Bréf frá Róm

Svanberg, ég er að hlusta á Are Friends Electric, í fyrsta sinn að ég held, hreinlega. Það hlýtur að marka einhvers konar tímamót. Ég man að þú mæltir með þessu lagi við mig þann 9. október árið 2006. Nú, sex árum síðar, þegar ekki er nema vika í heimkomu mína, set ég lagið á og nýt. Þetta er frá svipuðum tíma og Ayatollah Khomeini komst úr útlegðinni í Frakklandi til heimalandsins og Múslimaði alla með tölu - en það er önnur saga. Gaman að svona tengingum milli rokks og pólitíkur, Communards og leiðtogafundurinn í Höfða er nærtækt dæmi.

Lasagnað er í pottinum, fer þaðan í ofninn. Össa óbóstrák af hafði ég alveg gleymt þar til þú minntist á hann í pósti ekki alls fyrir löngu. Mér þótti alltaf dáldið vænt um það gerpi, þótt hann hafi verið misjafnlega liðinn á kaffistofunni fyrir þrálát besserwiss, en maður hafði nú bara gaman af þeim.

Nokkrir eru horfnir og einhverjir hverfa bráðum líka, en Svanberg er kominn aftur. Þegar dyr lokast opnast í öllu falli gluggi.

Vika eftir af Róm og ég held jafnvægi enn þá. Á ekki nema nokkur ljósrit eftir og svo flýg ég á slóðir Bowies, til Berlínar, þar sem ég gisti eina nótt á kostnað Iceland Express sem seinkuðu fluginu um sólarhring. Gæti verið verra, best að muna eftir að taka nótur fyrir öllu, þeir eiga að borga alltsaman, hótel, leigubíl, mat.

Gamall draumur rættist nýlega þegar ég sá Radiohead á tónleikum. Er ekki samur maður á eftir. Upplifun, get ég sagt þér. Þvílíkir tónleikar hjá þessari stórkostlegu hljómsveit. Vissirðu að Radiohead hefur starfað óslitið, með óbreyttri mannaskipan, frá árinu 1985? Á því ári átti gítarleikarinn Johnny Greenwood fjórtán ára afmæli. Ef eitthvert núlifandi band á séns í að slá met Rolling Stones í líftíma þá eru það þeir. Radiohead er líka enn að gera gott efni. Nýjasta platan, King of Limbs, er þrælgóð.

Hér í Róm hef ég einnig farið á tónleika með Tindersticks (bætti þannig fyrir konsertinn sem ég missti af árið 2008 á Nasa) og Goran Bregovic. Allt saman framúrskarandi stöff. Nýja platan með Tindersticks - The Something Rain - hefurðu heyrt hana? Ég bókstaflega dýrka verkið, punktur.

Njóttu sólsetranna í Hafnarfirði næstu dagana, Svanberg. Svo kem ég heim og við fáum okkur einn rjúkandi espressó saman. Eða freyðandi öl.

Þinn,

Snæbjörn

þriðjudagur, 12. mars 2013

Foss á Vestfjörðum

Tók þessa mynd á ferðalagi til Bolungarvíkur sumarið 1990. Veit ekkert hvaða foss þetta er. Veit það einhver? Ætli það skipti einhverju máli?