mánudagur, 22. ágúst 2011

Kvöldflug: Samtal


S: Hæ. Sendi ég þér póstinn frá kjörklefakúkaranum?

H: Já, mig minnir það. Ertu ekki að meina reiðilesturinn og hótanapistilinn sem hún sendi þér? Ég minnist þess að hafa lesið það, þetta var gott flipp hjá stúlkunni.

S: Já, nokkuð sérstök hugmynd, sem var svo framkvæmd. Hún hefði bara átt að koma opinberlega fram og segja með nokkru þjósti: "Ég er Kjörklefakúkarinn með stóru kái!"

H: Þarna hittir þú naglann á höfuðið. En ég er að flýta mér og verð því að slíta samtalinu núna. Vona að þú fyrirgefir mér það - ég þarf að ná kvöldfluginu.

S: Auðvitað fyrirgef ég þér það, enda ekkert að fyrirgefa. Alltaf gaman að eiga við þig samtal. Ég þarf líka að fara að versla í matinn.

miðvikudagur, 17. ágúst 2011

Gott samtal - Kaldar ljóstýrur


S: Ruddi hann ekki brautina með verki sínu Kaldar ljóstýrur? Kom frá Brjánslæk, get ekki munað nafnið, en hvað um það - mig minnir að bókin hafi verið fjandi góð ...

H: Mikið rétt, það var hann sem ruddi brautina. Þetta var í október '86, sömu helgi og Communards voru með konsert á útihátíðinni á Brjánslæk, Don't Leave Me This Way var blastað aftur og aftur svo að mörgum þótti nóg um, þetta var ekki ósvipað því að sjá Springsteen upp á sitt besta hér í gamla daga. Kaldar ljóstýrur varð svo að kvikmynd seinna, Hilmar Oddsson leikstýrði, ég sá myndina á frumsýningu, Björn Blöndal smellti nokkrum myndum af mér þegar ég mætti í bíóið en ég komst ekki á forsíðuna. Myndin var betri en bókin, enda Hilmir Snær í aðalhlutverkinu.

S:Já, þetta er rétt hjá þér. Leiðtogafundinum var nýlokið og Reagan og Gobbi létu taka mynd af sér saman á Hamborgarafabrikkunni með Simma og Jóa.
Raisa var að versla í Brynju og Miklagarði þennan dag. Myndin var svo sannarlega betri en bókin, þótt bókin hefði verið góð. Var ekki Margrét Vilhjálmsdóttir nakin í myndinni? Jafnvel alla myndina? Hvernig getur maður gleymt slíku? Hún hefur aldrei fengist til að fara úr fyrir framan myndavél síðan. Ég man að Vigdís Grímsdóttir lék lítið hlutverk í myndinni ásamt öðrum rithöfundi, Okunbundi Rakma, en þegar þau töluðu hljómuðu raddir Sigurðar Pálssonar og Megasar. Þá ákvörðun tók Gerður Kristný í samráði bolann Guttorm sem nú er allur.

fimmtudagur, 4. ágúst 2011

Dynamo Bukarest


siglt á sjálfinu

ólgusjór

enginn lyf um borð

veiðarfæri löskuð

og þú

sem heldur yfir mér fyrirlestur

um boðorðin tíu

ert sú sem ég get ekki verið án

en verð að sakna í nokkra daga í mánuði

spyrð mig

hvort ég vilji draga andann með þér

ætla að svara á morgun en segi já um leið

framundan háskaleg skemmtisigling