mánudagur, 22. október 2018

laugardagur, 22. september 2018

Skák & mát

"Ef ég ætti kött myndi ég miklu frekar gefa honum Kit Kat heldur en Whiskas." Stórmeistarinn Michael Tal í stuttu spjalli við blaðamenn eftir að hafa sigrað stórmeistarann Helga Ólafsson í æsispennandi skák á opna Kýpurmótinu árið 1987.


þriðjudagur, 21. ágúst 2018

laugardagur, 28. júlí 2018

Arctic Monkeys - Four Out Of Five (Official Video)


lífið er eins og þorskur
en þó alls ekki á þurru landi
miklu fremur sem mjólkurhristingur í vefnaðarvöruverslun

fimmtudagur, 19. júlí 2018

laugardagur, 14. júlí 2018

Smell

Hann stimplaði sig inn. Fannst lyktin skrýtin. 

"Það er loksins búið að kaupa nýtt lyktarsprey", heyrði hann kallað úr eldhúsinu. 

Hann andaði léttar - nýjar og skrýtnar lyktir vöktu alltaf með honum grun um að rok og rigning myndu ráða ríkjum í veðrinu næstu misserin. Nú vissi hann að þetta yrði góður dagur - mögulega nokkrir góðir dagar framundan og að hann þyrfti ekki að kaupa sér ljósakort eða vikuferð til Króatíu.

sunnudagur, 17. júní 2018

Sugar Mountain

týndu af trénu óskir mínar
settu í frysti
affrystum er ég kem heim
þú færð eina tvær
en ég fæ þig

laugardagur, 12. maí 2018

Mannlýsing

Hann hefði átt að vera uppi á nýbylgjutímabilinu - mikið málaður, með eyrnalokk og sætur og fallegur eins og söngvarinn í Human League. Kvenlegur, en samt með öll helstu einkenni karlmanns.

miðvikudagur, 18. apríl 2018

Í Dvergríkinu

Ég mætti andstöðu í Dvergríkinu og fiskar hjóluðu þar um á trampólínum. Á haugunum voru böllin haldin, í gámum merktum Prinsessa. Á laugardögum var alltaf gott veður, enda var búið að kjósa um það. Heimilt var að gera styrktaræfingar á mánudögum, en aðrir dagar voru lánaðir.

sunnudagur, 1. apríl 2018

mánudagur, 26. mars 2018

miðvikudagur, 7. mars 2018

Einu sinni fór ég edrú á tónleika.

Ég var fimmtán ára.

Tónleikarnir voru haldnir í Laugardalshöll, 16. júní 1986.

Við vorum fjórir eða fimm vinirnir sem fórum saman.

Edrú en ekki það ungir að við værum ekki byrjaðir að drekka.

Mjög gaman.

Madness var aðalnúmerið.

FYC áttu vera næstumþvíaðalanúmerið en voru svo góðir að þeir urðu aðal eftirá.


föstudagur, 23. febrúar 2018