mánudagur, 27. júní 2011

TEXT


velkominn

taktu af þér

geymdu eitthvað af þessari rigningu

vertu eins og heima hjá þér

fátt betra en að látast vera heima

hugsa annarsstaðar

við engan að sakast

sökktu þér í sófann

ég sekk ofan í hyldýpið

sem aðskilur mig frá lífinu

nóg til í ísskápnum

þriðjudagur, 14. júní 2011

Upgrade Your Browser


einvera með öðrum

án síma

loksins gott samband

Tré


týndu af trénu óskirnar mínar
settu þær í frysti
affrystum þær er ég kem heim
þú færð eina tvær
en ég fæ þig