miðvikudagur, 31. ágúst 2022

Khanada


Langar að dreyma Gary Numan og John Foxx ræða saman á bjagaðri arabísku með smá blöndu af Austurríkis-þýsku um Midge Ure og lagið Letter to Hermione með David Bowie og strúktúr þess og fegurð 

fimmtudagur, 18. ágúst 2022

Bloodhound Gang



Var bitinn af háværum litlum hundi í dag (glefsaði aðeins í mig helvítis titturinn). Langaði að slá kvikindið en fór þess í stað að hugsa um eina skiptið sem ég hef drukkið rakspíra - Calvin Klein, OBSESSION for men (pínu gay nafn), heima hjá Didda vini mínum, árið 1990, á Skúlaskeiðinu. Hey Joe með Hendrix glumdi um herbergið sem var ekki í löglegri hæð og það vorum við ekki heldur.