föstudagur, 11. desember 2020

fimmtudagur, 12. nóvember 2020

Án titils: Eða - Með sólgleraugu á sýningu (verk í eigu listamannsins).


Ætlarðu virkilega með sólgleraugun á sýninguna spurði unglingsstúlkan föður sinn.

Besta vinkona hennar brosti og kuldinn gerði hvað hann gat til að halda okkur úti.

Stundum þarf maður að vera með sólgleraugu, og mig langar ekki að taka þau af mér, og einu sinni var í tísku að vera með sólgleraugu á skemmtistöðum svaraði faðirinn um leið og þau gengu inná safnið.

Unglingsstúlkan glotti og hristi höfuðið, leit á vinkonu sína, og svo hlógu þær dátt.

Litla dúllan skipti sér ekkert af samræðum okkar en var áhugasöm um Daffy Duck.

Ég sagði við hana: Þú verður að spyrja 
Jón Óskar
.

sunnudagur, 8. nóvember 2020

þriðjudagur, 3. nóvember 2020

Moppa


Hann skúrar í huganum. Með moppu myndskreyttri af Hergé, og sápulegi úr lakkrís og tönnum gamalla manna frá Albaníu og Indónesíu. Þeir fengu sér falskar.


laugardagur, 31. október 2020

Úr gamalli þjóðvísu

 


þegar október er búinn byrjar nóvember aftur

föstudagur, 30. október 2020

Gyrðir Elíasson

 


Gyrðir er í raun pre Sigur Rós ...

Harpa Rut Harðardóttir

þriðjudagur, 27. október 2020

Túlípanar

 

"Þetta snýst allt um eftirspurn. Appelsínuhúð eða eðalbókmenntir. Let´s face it." (Höf. ókunnur)


sunnudagur, 11. október 2020

Andstæðan við gott


"Það er alveg sama hvaðan gott kemur - en hvaðan andstæðan við það góða kemur er alltaf svo augljóst, og það er frekar fúlt." (Höf. Anita Pallenberg)


miðvikudagur, 30. september 2020

Vinur minn eignast Dreka


Vinur minn eignast Dreka og einhverjir karakterar sem getur varla liðið vel eða lifað innihaldsríku lífi agnúast út í skúringar heima hjá mér. Veðrið er æðislegt, ég hlusta á REM og skrifa viðtal við frábæran mann auk þess að knúsa mína frábæru fjölskyldu með minna en þriggja mínútna millibili.


sunnudagur, 13. september 2020

talandi brjóstsykurinn

"Þú slappst úr umbúðunum, þú verður ekki étinn," sagði alvitri sögumaðurinn með sinni dimmu röddu. "Já, það er rétt hjá þér, hjúkk," sagði talandi brjóstsykurinn og velti sér um á skítugu bílgólfinu rétt við kúplinguna. Það mátti greina létti í röddu hans sem var í skrækari kantinum.



fimmtudagur, 23. júlí 2020

Svart blek

Notist í stórum skömmtum.

miðvikudagur, 1. júlí 2020

sunnudagur, 21. júní 2020

þriðjudagur, 2. júní 2020

Iceland - travel guide

Hann drekkur í sig súrefnið og þakkar fyrir að ekki séu fleiri göt í malbikinu.

sunnudagur, 31. maí 2020

sunnudagur, 24. maí 2020

sunnudagur, 17. maí 2020

text

einvera með öðrum
án síma
loksins gott samband

sunnudagur, 10. maí 2020

Drop dead gorgeus

sá kakkalakka kremja kiðfætta konu í Krónunni í dag klukkan kortér í kjögur. Systir kiðfættu konunnar, Áslaug, brjálaðist og drap kakkalakkann með því að kæfa hann í smjörva sem systir hennar keypti. Þetta var ófögur sjón.

laugardagur, 25. apríl 2020

Grindavík

Grindavík hefur hampað Íslandsmeistaratitli meistaraflokks karla í körfubolta þrisvar sinnum - 1996, 2012 og 2013.

þriðjudagur, 21. apríl 2020

þriðjudagur, 14. apríl 2020

Ljós & mynd

A white house, a white room
The program of today
Lights on, switch on
Your eyes are far away
The map represents you
And the tape is your voice


mánudagur, 9. mars 2020

Viðrar vel

Það viðrar vel til Sigur Rósar, Haralds veðurfræðings, það viðrar vel: Launsátur, samsettar myndir, öskur í djúpum dal, lítið hús, hæfileikar, Minnisbók, myndir sem prýða veggi sem hafa ekki verið málaðir síðan 1996, eldgos, kyrrð, tónlist, rödd, athöfn, afrakstur, afkvæmi ...

laugardagur, 8. febrúar 2020

Tunglið

Frosnir kjúklingaleggir í matinn og smjörsýran er smurð ofan á normalbrauð fyrir þá vandlátu, tannþráðurinn notaður sem skeinipappír. Lífið er fallegt ...



fimmtudagur, 30. janúar 2020

föstudagur, 3. janúar 2020