fimmtudagur, 26. mars 2009

Sjáumst þá

Langar að fá mér gönguferð út í sjoppu og kaupa hauskúpur og stjörnur

Verð stundum fyrir vonbrigðum með hversu fáar hauskúpur ég fæ og stjörnur

Kvarta í hljóði, er of kurteis og meðvirkur til að gera athugasemd

Geng síðan heim á leið og skoða grasið á leiðinni og malbikið

Grasið heldur sínu en malbikið lætur á sjá

Ríf hauskúpurnar í mig af miklum móð og hakka í mig stjörnurnar líkt og jörðin sé sú eina í alheimi og vetrarbrautin sé alveg að fara að útskrifast

Sofna svo glaður, en tannburstaði mig reyndar áður, því það er svo mikill sykur í hauskúpum og stjörnum

Sofið rótt, félagar mínir, vinir mínir, það er ekki komið að því að þið þurfið að flýja þennan bæ

Í næstu viku birtir til með viðeigandi hátíðarhöldum og allir kveikja á blysum, neyðarblysum

Sjáumst þá

sunnudagur, 15. mars 2009

Valur og tungan


Valur Áki beit í tunguna þegar við vorum á rúntinum um daginn, fimmta þessa mánaðar. Þessi voru viðbrögð hans, þegar mesti sársaukinn var um liðinn nokkrum sekúndum síðar. "Þegar ég bít í tunguna er eins og tennurnar séu lifandi og hati tunguna."

sunnudagur, 8. mars 2009

Einlæg


"Árin eru svo fljót að líða þegar manni er ekki lengur boðið í afmælin. Þá veit maður aldrei hvað þau eru gömul sem eiga afmæli og eru að fermast."

(Höf. Elísa Rún)