þriðjudagur, 1. apríl 2008

Ársgömul síða

Það er um það bil ár síðan ég hóf skrif á þessa bloggsíðu. Ætla að halda áfram með þetta. Kemur og fer andinn. Þakka þeim sem nennt hafa að lesa efni síðunnar og skoða myndirnar kærlega fyrir. Bless í bili. Svanur

Ps: Svo verða allir að muna að hafa samband við mig á svanur@birtingur.is lumi þeir á frétt eða fréttum, nú eða þá góðu viðtalsefni, eða bara einhverjum spennandi, skemmtilegum og sérstökum uppákomum. Allar ábendingar eru vel þegnar. Þetta er eilíf barátta :)

3 ummæli:

Hjalti sagði...

Hamingjuóskir með afmælið. Ég man enn eftir þeim degi sem ég uppgötvaði síðuna. Það kvöld sat ég í sæti 12E í Teatro Manzoni með fartölvuna í fanginu og skalf af aðdáun. Þakkir fyrir allt og megi skrifin halda áfram eitt ár enn, ið minnsta.

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir það Hjalti. Var sæti 12E á einhvern hátt ólíkt öðrum sætum í Teatro Manzoni? Kv, Svanur

Nafnlaus sagði...

það var ekkert. Takk fyrir mig.

kv. Kalakris