laugardagur, 28. september 2019
James: Getting away with it, all messed up. That's the living.
Systir Mannlegu Sveppasósunnar var uppálagt að halda með QPR, en meðfætt uppreisnareðli hennar, gerði henni kleift að mótmæla, og hún ákvað að halda með WBA, og helga líf sitt því félagi. Þess má geta að systir Mannlegu Sveppasósunnar var drykkfelld og elskaði þess vegna menninguna í kringum beinar útsendingar á enska boltanum.
föstudagur, 27. september 2019
fimmtudagur, 26. september 2019
laugardagur, 21. september 2019
Dansaðu
dansaðu í myrkrinu
við dýrið innra með þér
við djöflana sem stytta þér stundir
leyfa þér ekki að fara fyrr en þú ert búinn að gráta á þig gat
í myrkrinu samfleytt í fjóra daga
dansaðu systir
dansaðu kona
við lögin frá öllum tímum
og strákana í öllum litum
föstudagur, 13. september 2019
Paul Smith
Var bitinn af háværum litlum hundi í dag
(glefsaði aðeins í mig). Langaði að öskra, gerði ekki - en fór þess í stað
að hugsa um eina skiptið sem ég hef "drukkið" rakspíra (einn agnarsmár
sopi) - Calvin Klein, OBSESSION for men, heima hjá vini mínum, árið 1990,
á Skúlaskeiðinu. Hey Joe með Hendrix glumdi um herbergið sem var ekki í
löglegri hæð og ekki við heldur.
föstudagur, 6. september 2019
Lóðin & geymslan
feitir mávar spígspora um lóðina
bíða eftir mygluðu brauði mínu
finn fyrir pirringi nágrannans
og man um leið að ég verð að taka dekkin út úr hjólageymslunni
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)