Einu sinni var gott og sætt myndbandstæki á göngu sinni um stræti lífsins. Þá kom vondi DVD-kallinn og át það. Namminamminamm, heyrðist vondi DVD-kallinn segja áður en hann réðst til atlögu.
Já, ég vil fá þetta útgefið. Gæti jafnvel verið sería um vonda DVD-kallinn. En barnabókmenntir þola kannski ekki að fjalla um illmenni? Nema auðvitað ef illmennin þroskast og verða góðmenni í sögulok. Annars man ég enn er ég fór með Davíð Kapítal og Óla Ædol í Japis, Brautarholti, og keypti með þeim VHS-afspilunartæki, sem átti að hafa til notkunar á vinnustað okkar, Vitanum. S. Chaplin kíkti í heimsókn þann dag.
Enn eldri minningu á ég af skólalóðinni við Engidalsskóla, sirka árið 1988. Nafni minn sagði þá við mig, hreykinn, að foreldrar hans væru búnir að kaupa vídjótæki. Foreldrar mínir fylgdu í kjölfarið nokkrum vikum seinna. Okkur leið eins og við hefðum tekið fyrsta skrefið inn í nýja veröld, sem var auðvitað tilfellið.
3 ummæli:
Þetta fannst mér mjög skemmtileg saga.
He, he. Er að spá í að koma með fleiri í svipuðum dúr. Kv, Svanur

Skrifa ummæli