sunnudagur, 16. mars 2008

Ljósvakinn IV


Morgunblaðið. Sunnudaginn 24. júlí, 2005 - Fjölmiðlar. Ljósvakinn

Ekki frjálsar á föstudagskvöldum!

Alveg er það merkilegt að Ríkissjónvarpið skuli sýna frá Gullmótum í frjálsum íþróttum á föstudagskvöldum. Mótin eru ekki sýnd í beinni útsendingu og því er það alveg furðuleg ráðstöfun að sýna þau á þessum tíma.
Sjálfur er ég áhugamaður um íþróttir en á föstudagskvöldum er ég ekki í miklu stuði til að horfa á útsendingu frá frjálsíþróttamóti. Þá vill maður frekar horfa á einhverja góða bíómynd, kannski með einn kaldan á kantinum. Það er vissulega virðingarvert hjá Ríkissjónvarpinu að sýna frá þessum Gullmótum því þar eru á ferð allir bestu frjálsíþróttamenn heimsins. Hins vegar tel ég að eðlilegast væri að sýna frá þessum mótum á laugardögum, sem eru jú annálaðir íþróttadagar í hugum margra. Ekki veit ég hvort ætlunin er að halda þessu til streitu og sýna frá öllum sex Gullmótunum á föstudagskvöldum. Segi bara: Ekki meira af frjálsum íþróttum á föstudagskvöldum, takk fyrir!
Hins vegar ber að hrósa Ríkissjónvarpinu fyrir að sýna þætti Michaels Palin, fyrrum meðlims í Monty Python, um ferðir hans um Himalajafjöll. Frábærir þættir hreint út sagt. Fyrst maður er byrjaður á því að hrósa er allt eins gott að halda því áfram.
Skjár 1 hefur gert vel í því að sýna þematengdar kvikmyndir. Sem dæmi hafa nú allar Rocky-myndirnar, með Sylvester Stallone í essinu sínu, verið sýndar sem og myndir Clints Eastwood um lögregluharðjaxlinn Dirty Harry. Hvet ég eindregið forráðamenn stöðvarinnar til að halda áfram á þessari braut. Af nógu er að taka og sem dæmi nefni ég myndir hins pólska Krzysztof Kieslowski, sem því miður lést langt um aldur fram, og þá væri nú ekki slæmt að sjá nokkrar gamlar og góðar myndir með uppáhaldsleikaranum mínum, honum Paul Newman. En nú er komið nóg af hrósi. Smá neikvæðni í lokin.
Ekki finnst mér það spennandi valkostur sem Stöð 2 heldur gjarnan á lofti, að sýna nýjustu bandarísku bíómyndirnar. Margir sjá þessar myndir í kvikmyndahúsum, enn fleiri leigja þær á myndbandi eða DVD, og svo þegar þær eru komnar í sjónvarpið eru þær álíka ferskar og andlitið á Mickey Rourke í dag.
Svanur Már Snorrason

2 ummæli:

Svanur Már Snorrason sagði...

Ekkert mega fersk grein - ekki nema bráðum þrjú ár síðan hún var skrifuð. En ég gleymdi einfaldlega tilvist hennar en fann hana fyrir tilviljun um daginn og ákvað því að birta hana. Það var virkilega gaman að skrifa þessa Ljósvakapistla - láta svona gamminn geysa og það á mogganum. Ekki ætla ég að fullyrða að þessi grein hafi haft áhrif en þó var það svo að RÚV sýndi ekki oftar frjálsar á föstudagskvöldum eftir birtinguna. Það hefur líklega bara verið tilviljun. En samt gaman að því. Kv, Svanur

Hjalti sagði...

Greinin er e.t.v. ekki eins fersk og jöklasalatið í Hagkaupum, Eiðistorgi, en þó nokkuð ferskari en andlitið á Mickey Rourke í dag. Gaman alltaf að svona fjölmiðlapistlum, maður sér fyrir sér kverúlant sitjandi í sófa með fjarstýringuna í annarri. Annars er Þúskjár ávallt sveigjanlegastur og góður kvölds og morgna. Hér er eitt gott sem við Sölvi gláptum á saman eftir næturvakt sl. sunnudagsmorgun:

http://www.youtube.com/watch?v=Mm1gBuEr7bk