fimmtudagur, 9. október 2014

Bíltúr

"Ég ætla í bíltúr," sagði hann hásum rómi. Enginn mótmælti né tók undir með honum. Hann tók snöggt af stað þótt úti væri hálka og snjókoma.

Í útvarpinu hljómaði Miles Davis á hæsta styrk, en þrátt fyrir að bíllinn væri nokkuð við aldur voru í honum frábær hljómflutningstæki.

Hann hafði gleymt símanum sínum viljandi heima og vissi mætavel að lítið bensín var á tankinum.

Þrátt fyrir það lá leið hans út úr bænum og inn í myrkrið.

Tveir þakklátir hrafnar hlustuðu eftir trompetleiknum um leið og þeir gerðu lambalæri skil sem vörubílstjóri hafði hent til þeirra á ferð.

Engin ummæli: