sunnudagur, 23. febrúar 2014
fimmtudagur, 6. febrúar 2014
Elsti viðskiptavinur Bókasafns Hafnarfjarðar 100 ára
Þann 9. ágúst
síðast liðinn fagnaði Guðrún Jónsdóttir, sem lengstum bjó á
Skúlaskeiði 28 hér í bæ, 100 ára afmæli sínu. Vægt er til
orða tekið þegar sagt er að Guðrún beri aldurinn vel. Hún er
mjög ern og lítur nánast út eins og unglamb. Hún segist reyndar
vera orðin frekar slæm í fótum og að heyrnin sé aðeins farin
að bila, en að öðru leyti heilsist henni mjög vel, enda býr hún
ein í íbúð á Álfaskeiði 64, og segir það, út af fyrir sig,
nokkuð til um hversu hraust hún er og viljasterk.
Guðrún er ættuð
úr Arnafirði, nánar tiltekið bænum Auðkúlu í Auðkúluhreppi
í Vestur-Ísafjarðarsýslu. “Ég flutti til Hafnarfjarðar árið
1931 og alla tíð síðan hef ég búið hér og ávallt líkað
vel við lífið og tilveruna hér í bænum,” segir Guðrún og
bætir við: “Fyrst um sinn leigðum við, maðurinn minn heitinn
og ég, hjá Ólafi Böðvarssyni þangað til við keyptum okkur
íbúð á Skúlaskeiði 28. Maðurinn minn, Gunnar E. Sigurðsson,
var Vestfirðingur eins og ég; hann var frá Þingeyri við
Dýrafjörð.
Á
þrjú barnabarnabarnabörn!
Guðrún segir
tímana hafa breyst mikið á hennar ævi – má muna tímana tvenna
eins og stundum er sagt. “Hún var óneitanlega harðari
lífsbaráttan þegar ég var að vaxa úr grasi. Lífið var
fábrotnara, möguleikarnir færri og fólk gerði allt hvað það
gat til þess að nýta það sem til féll. Það var ekki mikið um
skólagöngu á mínum æskuárum, þó var barnaskóli, en hann var
nú öllu minni að umfangi en grunnskólinn er í dag. Ég fékk þó
að fara í undirbúningsnám fyrir menntaskóla í einn vetur og það
var mjög skemmtilegt og eftirminnilegt. En tímarnir hafa sannarlega
breyst svo að um munar; já, ég hugsa stundum með sjálfri mér:
mikið hlýtur fólkið í dag að vera lært – það er meira en
hálfa ævina í skólum að læra!
Guðrún eignaðist
fimm börn með sínum manni og öll eru þau á lífi og þeim
heilsast vel. Afkomendur Guðrúnar eru líka orðnir býsna margir.
Þar er nú sannarlega um auðugan garð að gresja.
“Ég á sextán
barnabörn og þrjátíu barnabarnabörn og svo á ég þrjá
afkomendur í fimmta ættlið – þrjú barnabarnabarnabörn! Það
liggur við að maður sé orðinn þreyttur á að telja,” segir
Guðrún og hlær sínum glaðværa hlátri.
Eins og áður segir
er ekki að sjá á Guðrúnu að hún sé orðin tíræð; hún
segir sig líka hafa verið heppna með heilsufarið, hún hafi
ávallt verið góð til heilsunnar. “Mér verður sjaldan
misdægurt og það skiptir miklu að heilsan sé góð og þeirrar
gæfu hef ég orðið aðnjótandi. Þá er ekki síður gott að
hafa allt þetta góða fólk í kringum sig, það er alveg
ómetanlegt.”
Bækur
eru lífsnauðsyn.
Við snúum okkur nú
að umræðuefni sem er Guðrúnu mjög hugleikið: - bókum. Hún
segir hiklaust að án bókanna myndi hún ekki hafa náð svo háum
aldri sem raun ber vitni.
“Bókalestrinum á
ég mikið að þakka, lestur bóka hefur gefið mér mikið, hefur
haldið mér félagsskap og gert mér í raun og veru kleift að búa
ein; bækurnar eru mér lífsnauðsyn. Já, bókin er alveg
dásamlegur félagi, enda var það svo að ég skráði mig strax í
Bókasafnið þegar ég fluttist suður. Safnið nota ég enn mjög
mikið, fæ þar um það bil tuttugu bækur mánaðarlega, og er
þakklát því góða og hjálpsama fólki sem vinnur þar.
Ég hef alltaf lesið
mikið, reyndar allt frá því að ég lærði að lesa og ég held
ég gæti ekki búið ein ef ég hefði ekki nóg að lesa; væri
líklega komin á Sólvang fyrir löngu,” segir Guðrún og
skellihlær.
Guðrún segist
vilja lesa sem fjölbreyttastar bækur og segist lesa nánast allar
sortir bóka.
Áttu þér
einhvern eftirlætis höfund?
“Það er auðvitað
hægt að nefna marga höfunda – það er til svo mikið af góðum
bókum. Ég get þó nefnt að í kvæðabókunum er Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi í miklu uppáhaldi hjá mér. Að honum
nefndum nefni ég þá Snorra Hjartarson og Einar Ben. Þetta voru
mikil skáld. Ég fullyrði að lesturinn á – án efa – stóran
þátt í því að ég hefi náð svona háum aldri. Ég er orðinn
nokkuð slæm í höndunum, þannig að ég er alveg hætt að geta
heklað, en ég gerði talsvert af því hér áður fyrr – heklaði
mikið og þá sérstaklega barnakjóla. En núna, núna les ég
bara,” sagði heiðurskonan Guðrún Jónsdóttir.
Texti og myndir:
Svanur Már Snorrason.
Viðtalið birtist í Víkurfréttum í ágúst árið 2006, en þess má geta að Guðrún er enn í fullu fjöri og verður 108 ára á þessu ári.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)