
Valur Áki er, ásamt föður sínum og Rúnu ömmu, staddur á bensínstöð við Reykjarvíkurveg í Hafnarfirði. Valur Áki er með opinn glugga í aftursæti á Volvo bifreið föður síns, og verður starsýnt á sköllóttan mann. Mann sem hefur til að bera nokkuð egglaga höfuð og dælir bensíni eða dísilolíu á bíl sinn. Lætur Valur Áki þá þessi fleygu orð falla:
"Sjáðu manninn þarna! Hann er ekki með neitt hár - hann er bara með kúlu."
Flottur gæi Valur.
SvaraEyðaNökkvi skoraði þrjár körfur á móti í dag. Unnu Fjölni en töpuðu fyrir Tindastól. Á morgun er það ÍR og Breiðablik.
Kveðja frá bökkum Ölfusár.
Hann hefði átt að sjá manninn sem bjó í bænum okkar í Belgíu, hann var með frekar lítið af hári á höfðinu, en þau sem voru til staðar voru býsna löng og sjúskuð. Svo var hann með kúlu ofan á höfðinu sem var svona 1/5 af stærð höfuðsins.
SvaraEyðaSvona er þetta elsku frændi. Ekki allir jafn heppnir að koma úr svona vel "hærðri" fjölskyldu eins og við.
SvaraEyðaMisfagrar makka fjölskyldur!
P.S Hærðri, er það orð?