föstudagur, 1. júní 2007

Svengd Vals Áka


Valur Áki: Ég er svangur.


Faðir Vals Áka: Ég skal gefa þér að borða, hvað viltu?


Valur Áki: Kleinuhring og kókómjólk.


Faðir Vals Áka: Já, þú mátt fá kleinuhring og kókómjólk. En þú veist að þú mátt ekki fara með matinn inn í herbergið þitt. Þú verður að borða matinn inni í eldhúsi.


Valur Áki: Ég er ekki svangur þar.


4 ummæli:

  1. Framtíðar stjórnmálamaður!

    Haha frábært.

    SvaraEyða
  2. Þetta er snilld. Held ég eigi eftir að fá þennan frasa lánaðan.

    Reyndar á ég sjálf svipaðan frasa frá því ég var ekki mikið eldri en Valur Áki er nú. Þá langaði mig þessi ósköp í kók, svo ég sagðist vera þyrst. Þegar mér var boðið vatn, þá svaraði ég: "Nei ég er bara þyrst í kók"

    Snemma beygist krókurinn...

    SvaraEyða
  3. Hæ hæ.
    Er komin með þig á bloggrúntaruppáhaldin mín. Þá man ég eftir að kíkka, svo gaman að lesa hvað þú skrifar!! Valur Áki er auðvitað mega ormur og með svör við öllu ;) Já og til hamingju með þá gömlu í dag.
    Bestu kveðjur frá okkur í DK.

    SvaraEyða
  4. Gleymdi að óska þér til hamingju með sýninguna, verst að missa af henni :( En frábært og gangi þér vel.

    SvaraEyða