sunnudagur, 8. desember 2013
miðvikudagur, 4. desember 2013
mánudagur, 7. október 2013
Persónur undir jökli
Biskup Íslands sendir
ungan guðfræðing út á Snæfellsnes til skýrslugerðar um ástand
trúmála þar. Biskup segir: “Vér biðjum um skýrslu, það er
alt og sumt.” (18). Með þessa fyrirskipun í farteskinu og
segulbandstæki fer hinn ungi guðfræðingur, sem fyrst er nefndur
umboðsmaður biskups en síðan einfaldlega Umbi, af stað vestur á
Snæfellsnes til að grafast fyrir um hvað sé að gerast í
trúmálum þar.
Í
bók Halldórs Laxness, Kristnihald
undir jökli, er að finna mikið af
áhrifaríkum náttúrulýsingum, litríkum og skemmtilegum persónum
og meitluðum samtölum þeirra. Þessar persónur sögunnar eru
stundum, jafnvel oft, öfgakenndar og þær binda allajafna ekki
bagga sína sömu hnútum og samferðamenn þeirra.
Í þessari ritgerð er
ætlunin að skoða aðeins nokkrar af þessum litríku persónum,
fyrst aukapersónurnar, svo aðalpersónur en einkum sóknarprestinn,
séra Jón Prímus, sem mörgum hefur orðið tilefni aðhláturs en
jafnframt alvarlegra umþenkinga um lífið og tilgang þess og
tilveruna í heild.
Aðeins um aukapersónur
Helgi á Torfhvalastöðum
minnir stundum á persónu úr einhverjum farsa eftir Dario Fo; hann
týnir þeim gráa en finnur þann rauða. Hann er öfgafullur maður
og sannfærður, trúir fullkomlega á heimspeki Dr. Sýngmanns.
Hann hefur gefið út bindin hans sex en fékk ekki krónu til baka.
Hann var þó svo sem ekki að gera sér rellu út af því!
Tumi Jónsen,
safnaðarformaður, er maður sem kippir sér ekki upp við hvað sem
er. Hann er að mörgu leyti líkur séra Jóni, til dæmis hvað
varðar skoðanir þeirra á trúmálum. Tal þeirra og tilsvör eru
svipuð, einkum þó þegar þeir eru spurðir um sjálfa sig:
Umbi:
Eruð þér Tumi Jónsen safnaðarformaður?
Bóndi: Svo er sagt. Ég
sel það ekki dýrara en ég keypti. (47)
Umbi: Ég vona að þér
séuð þó séra Jón.
Séra Jón: Það er af
og frá. (97)
Tumi
Jónsen er ekkert ósáttur við ástand kirkju og trúmála eins og
það er í söfnuðinum, enda sjálfur safnaðarformaður, og allra
síst er hann ósáttur við gjörðir séra Jóns eins og
eftirfarandi samræður vitna um:
Umbi:
Svo einu má gilda þó gleymist að jarða.
Tumi Jónsen: Sumum
finst það kannski dálítið skrýtið. Þó veit ég ekki betur
en allir komist á sinn stað á endanum.
Umbi: Og kenningin góð
hjá honum?
Tumi Jónsen: O seisei,
ekki er hætt við hann tali af sér hann séra Jón.
Umbi: Á hvað leggur
hann áherslu í kenníngunni?
Tumi
Jónsen: Við höfum ekki orðið varir við að hann séra Jón
hefði neina sérstaka kenníngu; og það líkar okkur vel. (50-51)
Þetta
samtal segir allnokkuð um persónu og embættisstörf séra Jóns og
um leið lýsir það vel því afslappaða andrúmslofti sem ríkir
í trúmálum í söfnuði séra Jóns. Þar er enginn
“besservisser”, engin óskeikul kenning að fara eftir, ekkert
virðist skipta máli nema þetta eðlilega og daglega amstur
safnaðarbarnanna að hafa í sig og á í sátt við Guð og
náttúruna.
Hnallþóra virðist ekki
vera alveg eins og fólk er flest. Hún bakar kökur og tertur allan
daginn og virðist eins og sprottin upp úr húsinu sem hún býr í.
Kannski hefur hún það hlutverk að vera persónugervingur þeirra
kvenna sem Laxness fannst einkenna húsfreyjur til sveita á Íslandi
á ferðum sínum. Þær buðu ævinlega upp á kaffi og tertur og
töldu saltfisk, kjöt og velling, þennan venjulega sveitamat, ekki
við hæfi handa gestum. Auðvelt er að skilja löngun Umba í
fiskbita og þrumara með smjöri eftir allt köku- og tertuátið
hjá Hnallþóru.
Dr. Sýngmann,
alheimsgrósséri, sem nánar verður vikið að á eftir, hefur haft
með sér til Íslands þrjá menn, er Umbi nefnir beitarhúsamenn.
Þeir eru lærisveinar Dr. Sýngmanns og eru einnig svokallaðir
lífmagnarar. Þeirra málpípa er Saknússemm II og virðist sem
hann sé þeirrar skoðunar að maðurinn hati sjálfan sig svo mikið
að hann verði ávallt að vera í einhverju stríði, en um leið
sé þetta mikla hatur tákn um mjög djúpa ást mannsins á sjálfum
sér:
Umbi: Hversvegna viljið
þér drepa þessa fugla?
Saknússemm 2.: Af því
við elskum þá Sir. (147)
Með beitarhúsamönnunum er komin skírskotun í Víetnamstríðið og því er kannski hægt að líta á þá sem einhverskonar erindreka Bandaríkjanna. Eftirfarandi orð Saknússemms II má þó líta á sem ádeilu á Bandaríkjamenn og kannski stríðsbrölt almennt:
Af
hverju ferðumst við bandaríkjamenn yfir hálfan hnöttinn með
flóknustu byssur veraldarsögunnar að skjóta nakta kotbændur í
landi sem við vitum ekki hvað heitir? Það er af því við
elskum þessa menn einsog sjálfa okkur. Við dáum þá. Við
borgum fegnir miljón dollara fyrir að mega skjóta einn bónda.
(150)
Aðeins
um aðalpersónur
Deilt
hefur verið um það hver sé aðalpersóna sögunnar, enda erfitt
að gera upp á milli. Hins vegar eru í aðalhlutverkunum þau séra
Jón prímus, Umbi, Dr. Goodman Sýngmann og Úa. Þau geta öll
talist aðalpersónur sögunnar, hvert með sínum hætti.
Dr.
Sýngmann, alheimsgrósséri, er sú persóna sem einna minnst kemur
við sögu í eigin persónu, en einna mest er rætt um. Hann er að
mörgu leyti hreyfiafl sögunnar því hann er óhemju ríkur og
getur veitt sér, að því er best verður séð, allt sem honum
sýnist. Svo virðist sem hann geti framkvæmt lífganir, það er
reist upp frá dauðum, og heimspeki hans er þess eðlis að hún
hreyfir við kirkjuyfirvöldum í Reykjavík. Hann tekur
sköpunarverkið ekki gilt og reynir af fremsta megni að sigrast á
þeim takmörkunum sem okkur, mannfólkinu, er gert að sætta sig
við.
Dr.
Sýngmann kemur fram sem neikvæð og afvegaleidd persóna. Hann er
vopnasali og vopnasmiður. Um hann segir Jódínus Álfberg, einn af
hans fylgimönnum:
Penínga!
Gróssérinn! Veistu ekki að hann hefur stórbúðir um allan
heim? Veistu ekki að hann er sá sem fann upp trixið í kafbátinn
og fallhlífina? (121)
Sumir
hafa séð í Dr. Sýngmann sjálfan Kölska. Aðrir sjá hann sem
fulltrúa einhvers heimsveldis. Sjálfur hefur hann birt, í sex
binda ritverkinu sínu, lausn á lífsgátunni. Einhvernveginn fer
samt svo að þessi mikli maður hverfur út í vindinn þegar hann
óvænt og öllum að óvörum gefur upp öndina kvöldinu áður en
lífgunarleiðangur hans átti að leggja upp á jökulinn.
Umbi
er aðalpersóna að því leyti að hann segir sjálfa söguna.
Hann verður fyrir mestum áhrifum í þessari ógleymanlegu ferð
undir jökulinn, enda ungur og óreyndur. Hann kemst í kynni við
allskyns fólk og furðuverur á meðan á ferð hans stendur, enda
reynist honum erfitt að halda sjálfum sér utan við skýrsluna,
eins og biskup mælti fyrir. Í samtölum sínum við fólk gerir
hann oft á tíðum lítið úr sjálfum sér, stöðu sinni og
gjörðum. Að vissu leyti er það eðlilegt vegna þess að menn
og konur þarna fyrir vestan ávarpa hann gjarnan sem biskup sjálfan,
eða svo gott sem.
En
Umbi er ekki bara umboðsmaður biskups heldur er hann líka
“umboðsmaður lesandans ekki síður en biskupsins og við verðum
að rýna í það “bréf” sem til okkar berst frá honum”
(Ástráður Eysteinsson 1993: 172).
Í
lok sögunnar stendur Umbi nokkurn veginn í sömu sporunum og séra
Jón þrjátíu og fimm árum fyrr, þegar Úa hafði hlaupist á
brott frá honum. Umbi glatar í sögunni sakleysi sínu og um leið
hlutleysi sem skýrslugerðarmaður þegar Úa flekar hann, óreyndan
og hreinlífan.
Þá
er komið að henni Úu sem sennilega er áhrifamesta persóna
sögunnar. Hvað hún heitir réttu nafni skiptir ekki öllu máli
en hún hefur mjög djúpstæð áhrif, að því er virðist, á
flestar þær þær persónur sem hún kemst í kynni við.
Hún
er kona séra Jóns, en hefur ekki verið hjá honum í áratugi.
Ekki er ósennilegt að ætla að það sé ástæðan fyrir því að
séra Jón er eins og hann er. Þegar Úa, ung að árum, hljópst á
brott með Dr. Sýngmann, þá má segja að sú ákvörðun hennar
sé skiljanleg að mörgu leyti. Það er öllu meira spennandi að
halda út í heim með milljónamæringi en eyða ævinni á Íslandi
í útnesjaprestkalli lengst norður í rassgati. En þegar Úa
kemur loks aftur til Íslands þrjátíu og fimm árum síðar,
daginn eftir útför Dr. Sýngmanns og er orðinn einkaerfingi auðæva
hans, þá lætur hún eins og ekkert hafi í skorist:
Umbi:
Biskup vill heyra um status.
Konan:
Status, hvað er það?
Umbi:
Hvað þér séuð.
Konan:
Ég er prestskonan hérna. (263)
Það
lítur því út fyrir að þrátt fyrir allt sem hún hafði reynt
erlendis, meðal annars rekið hóruhús í Argentínu, verið nunna
í spænsku klaustri og líka gift kona og móðir í Bandaríkjunum,
þá hafi hún fyrst og síðast litið á sig sem prestskonu undir
jökli.
Aðeins
um séra Jón Prímus
Séra
Jón Prímus er án efa orðin ein allra þekktasta sögupersóna í
íslenskum bókmenntum fyrr og síðar. Það er hann sem hefur
vakið ugg meðal kirkjunnar manna, ekki fyrir gjörðir sínar
heldur fremur fyrir það sem hann hefur ekki gert. Hann gerir næstum
því ekkert sem venjulegur prestur í góðu brauði ætti að gera.
Lítið sem ekkert er um messur, jarðarfarir og skírnir og önnur
þau skyldustörf sem hann ætti að inna af hendi. Hann er í raun
sannkallað náttúrubarn, maður sem virðist una sér best einn og
engum háður, vinnandi smáviðvik hér og þar og fær í staðinn
smá bita af borðum samtíðarmanna sinna. Fábreytni og
einfaldleiki eru hans ær og kýr og svo virðist sem hann sé sáttur
við lífið og tilveruna. Ekkert raskar ró hans og hann hefur svör
á reiðum höndum við öllum spurningum. En ekki hefur séra Jón
alltaf verið svona maður. Hvað er það sem gert hefur hann að
þeim manni sem hann er orðinn?
Í
bókinni fáum við að vita að þrjátíu og fimm árum fyrr
stingur verðandi eiginkona hans af, rétt fyrir brúðkaupið, með
besta vini hans til útlanda. Menn þurfa að vera ansi sterkir
persónuleikar til að þola slíkt áfall og sennilega er ekki til
sá maður sem ekki léti svona lagað eitthvað á sig fá.
“Jón
Prímus tekur lífið gilt en hvergi segir að hann taki manninn
gildan eða samfélagið, enda hefur hann að ýmsu leyti sagt sig úr
lögum við samfélagslega starfshætti.” (Ástráður Eysteinsson
1993: 174).
Með
hliðsjón af því áfalli sem séra Jón varð fyrir, skoðunum
hans og lífsháttum, er ekki úr vegi að álíta að hann hafi
staðnað. Svo virðist sem hann hafi einfaldlega dregið sig inn í
eigin skel og ekki getað tekist á við þetta áfall. Að minnsta
kosti virðist hann ekkert hafa gert í því að reyna að ná Úu
til sín aftur. Lausn séra Jóns gagnvart þessu áfalli virðist
vera sú að ná sáttum við menn og skepnur og sjálfa náttúruna.
Séra Jón er ekki maður sem slær til baka heldur býður hann
hinn vangann og hann nýtur virðingar og er elskaður af
sóknarbörnum sínum, eða eins og segir í bréfi Tuma Jónsen
safnaðarformanns:
Ekki
skepnubarn í þessu plássi mundi kjósa að vera einn dag án séra
Jóns. Mundi öll bygðin harmi lostin ef skert væri hár á höfði
slíkum öðlingi. (15)
En
hvers vegna skyldi svo vera? Gæti það ekki verið vegna þess að
séra Jón treður engu upp á menn en er engu að síður til staðar
ef menn þurfa að leita á hans náðir? Að vísu, eins og áður
hefur verið bent á, er hann ekki fljótur að afgreiða málin, en
gerir það að lokum. Menn komast á sinn stað.
Séra
Jóni verður tíðrætt um snjótittlinga:
Um
snjótitlíng hef ég aungvu að bæta við það sem ég sagði um
daginn við úngan mann sem var að leita að sannleikanum: ef til
er almætti í himingeimnum, þá er það í snjótitlíngum. Hvað
sem á dynur, snjótitlíngurinn lifir af; stórhríðarnar eru ekki
fyr um götur geingnar en hann er orðinn sólskríkja. (230)
Það má í raun segja
að þessi lýsing eigi einnig mjög vel við um séra Jón sjálfan. Hann hefur staðið af
sér lífsins ólgusjó og sæst við menn og skepnur og ber ekki
kala til neins þó svo að
hann hafi verið mikið særður af fólki sér nákomnu; hann minnir
að sumu leyti á Krist og
boðun hans um fyrirgefningu.
Þá verður séra Jóni
nokkuð tíðrætt um samkomulag, sem kemur ekki á óvart, því það sem Úa gerði var
einmitt að rjúfa þeirra samkomulag um giftingu. En séra Jón
virðist frekar hafa styrkst við
þetta heitrof í þeirri trú að samkomulag sé það sem málin
gangi út á í samskiptum
manna:
Séra Jón: Alt líf rís á samkomulagi. Ég hélt þér vissuð að við verðum að koma okkur saman um hvort við eigum að lifa; annars verður stríð. (295)
Séra Jón: Alt líf rís á samkomulagi. Ég hélt þér vissuð að við verðum að koma okkur saman um hvort við eigum að lifa; annars verður stríð. (295)
Heimildaskrá:
Ástráður
Eysteinsson. 1993. “Í fuglabjargi skáldsögunnar.”
Halldórsstefna,
bls.
171-185. Rit Stofnunnar Sigurðar Nordals 2, Reykjavík
Gunnar
Kristjánsson. 1993. “Liljugrös og járningar.”
Halldórsstefna,
bls.
146-156. Rit Stofnunnar Sigurðar Nordals 2, Reykjavík.
Halldór
Laxness. 1990. Kristnihald undir jökli. Vaka-Helgafell,
Reykjavík.
Peter
Hallberg. 1969. “Kristnihald undir jökli.” Skírnir,
143. ár, bls. 80-104.
mánudagur, 30. september 2013
Hin eilífa hringrás sköpunar og eyðileggingar
Til örlítillar
athugunar og umfjöllunar
er hér smásagan Undir Eldfjalli eftir Svövu Jakobsdóttur sem er
að finna í samnefndri bók sem kom út árið 1989 hjá Forlaginu
og inniheldur sex smásögur.
I
Hjónin, Gerður og Loftur, sem komin
eru á efri ár hafa nýlega fest kaup á landskika sem er rétt
undan eldfjallinu fræga, Heklu; - þau hafa hugsað sér að græða
skikann upp og byggja sér þar bústað. Þegar sagan hefst liggja
þau við í tjaldi á nýkeyptu eignarlandinu og eru að bíða
eftir komu sonar síns sem heitir Yngvi og konu hans, Heiðu, og
barni þeirra sem er varla meira en nokkurra mánaða gamalt. Þau
bíða spennt eftir komu þeirra og áliti á þessum kaupum og
virðist það skipta þau hjónin þó nokkuð miklu máli hvaða
álit ungu hjónin fá á ráðagerðum þeirra og þó alveg
sérstaklega eftir skoðun sonarins. Það er eins og þau vilji fá
staðfestingu á því að það, sem þau ætla sér með kaupum á
landinu, sé bæði gott og rétt:
Yngvi þagði svo lengi
að vart var einleikið. Svo slakaði hann á einbeitingunni,
svipurinn óræður, í mótsögn við léttleika raddblæsins þegar
hann kvað upp dóminn: Til ills fórum vér um góð héruð.
Merkikerti sagði móðir hans. Hann ætlaði þá ekki að láta
neitt uppskátt. Nú yrði að draga þetta upp úr honum, hvað
honum raunverulega fyndist. (13-14)
Í sögunni er fylgt sjónarhorni
Gerðar og verður hún lesandanum nokkurskonar leiðarvísir í
gegnum landskikann og náttúru hans og söguna sjálfa (Í fimm af
þeim sex sögum sem eru í bókinni er sjónarhorn konu notað).
II
Þegar við kynnumst persónum
sögunnar og fylgjum þeim síðan um landskikann virðist sem svo að
eitthvað kraumi undir niðri á milli eldri hjónanna annarsvegar og
sonarins hinsvegar. Ekki þannig að það sé bein óvild þeirra í
millum en eitthvað er það þó sem sækir þannig á hugann og
veldur því að maður fær á tilfinninguna að eitthvað óbeint
sé að, einkum og sér í lagi gagnvart Yngva, en skynjar það
einnig úr huga Gerðar og Lofts. Það er einna líkast því að
Yngva sé illa við þetta brölt foreldra sinna og finnist þau vera
komin yfir þann aldur að vera að taka á sig nær óvinnandi
verkefni þegar þau gætu og ættu frekar að una vel sínum hag
heima hjá sér þar sem garðurinn er fullræktaður og aðeins þarf
að halda við:
Og í svipleiftri, í
sömu mund og Loftur dró hann burtu og sagðist ætla að sýna
honum tætturnar, hafði Gerður séð inn í hug hans og varð
undrun slegin. Sonur þeirra hafði áhyggjur af þeim! Þungar
áhyggjur. Hann óttaðist að þau væru ekki fær um þetta! (16)
Kannski má segja að í vantrú
Yngva á fyrirætlunum foreldra sinna felist raunsæi blandað
kærleik; auðvitað vill hann þeim ekki illt, en hann metur stöðuna
þó kalt: Landskikinn er örfoka svæði undir eldfjalli og þau
komin á efri árin. Ef til vill finnst honum að hlutverki þeirra
sem ræktenda sé lokið; hann er floginn úr hreiðrinu og búinn að
koma sér ágætlega fyrir og – eins og áður er vikið að – þá
er fullræktaður og fallegur garður heima fyrir hjá þeim. Hann er
sjálfur byrjaður að rækta garðinn sinn, kominn með konu og
barn, finnst ef til vill að nú sé sinn tími í garð genginn hvað
þetta varðar, en tími kominn á þau að slaka á og njóta
elliáranna sem framundan eru í kyrrð og rólegheitum. Það er
eins og honum finnist þau vera að ryðjast inn í hans hlutverk –
hlutverk sem hann hafði tekið við af þeim:
… hjálpi
mér, hugsaði Gerður, þetta er svipurinn sem hann fæddist með …
undrandi, ráðvilltur, áhyggjufullur … hvað hafði hann brotið
af sér?
Og
stamaði: Ég meinti bara … Ég meinti bara … Þetta er verra en
ég bjóst við! (16)
III
Gerður og Loftur eru einskonar
landnemar sem horfa ekki með hryllingi til allrar vinnunnar sem
framundan er heldur með tilhlökkun þess manns sem horfir bjartsýnn
og jákvæður fram á veginn – burtséð frá aldri og fyrri
störfum. Þau hafa gróðursett þúsund birkiplöntur og maður
skynjar að áður en um langt líður verði þarna allt komið á
fullt. Þau eru í raun og veru að leggja til atlögu við óblíð
náttúruöflin, en það kemur fram í sögunni að fyrr á tímum
hafi verið þarna gróðursælt og fallegt land sem nánast hafi
þurrkast út gróðurfarslega á skömmum tíma í umbrotum
náttúrunnar. Nálægð hinna óblíðu náttúruafla –
eyðileggingaraflanna – virðist fremur hvetja en letja; - kannski
tengist þetta hinni eilífu baráttu mannsins við náttúruna og
tilraunum hans til að temja hana – ná valdi yfir henni og stjórn.
En hvort heldur það er nú málið eða eitthvað annað, þá eru
þau hjónin meðvituð um fallvaltleika lífsins og tengsl þess við
náttúruna:
Það var blæjalogn og
skafheiðríkt, einn af þessum sjaldgæfu hitabreyskjudögum sem
gefur ekki á Íslandi nema fyrir einstaka náð. Aldrei gerir fólk
ráð fyrir tveim þess konar dögum í röð, hvað þá þrem. Hver
slíkur dagur er hinn síðasti. Nauðugur viljugur nærist því
fögnuður þessara fögru daga á djúplægum grunni um fallvellti
lífsins. Á morgun skellur á slagveður! (9)
En þrátt fyrir allt þetta og
efasemdir Yngva eru þau ekki tilbúin að leggja árar í bát –
þau vilja halda áfram að skapa og byggja upp. Þau virðast sátt
við lífsbaráttuna eins og hún hefur verið og er og það er
meginorsökin fyrir því að þau eru í sátt við sjálfa sig og
umhverfi sitt. Sáttin við sjálfa sig veldur því að þau eru
reiðubúin að takast á við ný verkefni; þau girnast ekki
rólegheit og kyrrstöðu þótt komin séu nokkuð til aldurs, þau
vilja lifa lífinu lifandi meðan heilsa og kraftar endast. Þannig
koma þau mér fyrir sjónir, hjónin Gerður og Loftur.
IV
Eins og áður sagði er það
sjónarhorn Gerðar sem höfundur notar í sögunni; - um leið og
hún fylgir Yngva og Heiðu um landskikann, þá sýnir hún
lesandanum náttúruna sem er næstum því við hvert fótmál og
það er greinilegt að Gerður er mjög næm á hana. Hún virðist
skynja vel það líf sem þarna lifir og hún sér fyrir þá
möguleika sem þarna eru fyrir hendi til starfs og ræktunar þrátt
fyrir hraun og hrjóstur. Á þessum landskika ber margt fyrir augu
sem vitnar um hina eilífu hringrás sköpunar og eyðileggingar:
Undir
barðinu breytti landið um svip. Þar rann lækjarspræna sem spratt
undan hraunbrúninni í norðri. Vöxtur lyngs og víðikjarrs á
lækjarbakkanum kom á óvart og gladdi hraunþreytt augu, en handan
lækjar blasti við gamalt valllendi sem hrossanálar höfðu lagt
undir sig þó seigur grávíðirinn tregðaðist við. Fjær
skiptust á móar og þunngrónar hraunöldur. Í fjarska, langt utan
girðingar, trónaði grá melbunga alauð, yfirgefin af öllum nema
þyrpingum af kolsvörtum dröngum, líkastir skessum sem dagað
hefði uppi á þingi. (21)
V
Sumir menn vilja ávallt feta troðnar
slóðir og ekki taka mikla áhættu. Yngvi virðist vera einn af
þeim. Þar með er ekki sagt að hann sé verri maður eða heigull
því að hann hefur tekist á við nám og starf og á þar að auki
góða fjölskyldu. Hann hugsar ólíkt foreldrum sínum en skoðanir
hans á brölti þeirra á landskikanum jaðra við forsjárhyggju –
og það er ekki af hinu góða. Honum finnst sennilega að athæfi
þeirra hæfi ekki aldrinum en gleymir því að aldur er, oft og
tíðum, ekki endilega mælikvarði á getu fólks. Hinar troðnu
slóðir mannanna geta í sumum tilvikum snúist í andhverfu sína,
til dæmis gagnvart dýrum, og orðið hið mesta hættusvæði þar
sem enginn er óhultur og hættur leynast við hvert hjólfar, en
geta þó um leið orðið táknrænar fyrir leit mannsins að vísum
vegi og öruggu skjóli; - en sértu ósáttur við framgöngu þína,
líf þitt og starf, þá ertu hvergi óhultur:
Sandlóuungarnir.
Einkennilegt háttalag á þessum ungum. Þau höfðu sjálf orðið
fyrir þessu. Örsmáir fuglsungar, nýskriðnir í heiminn, virtust
sækja í hjólförin … eða lentu þangað óvart … og hlupu
síðan langar leiðir undan bílnum, ruglaðir og sprengmóðir,
riðandi á mjóum, veikburða títlunum. (11)
sunnudagur, 15. september 2013
Breyttir tímar
Bókasafn
er staður þar sem öllum á að líða vel: fullorðnum, unglingum
og börnum.
Og
í dag er raunin sú.
En
það hefur margt breyst í áranna rás þegar að bókasöfnum
kemur; þegar ég var lítill var mín tilfinning að bókasafnið
væri staður fyrir útvalda; námsfólk, fræðimenn og grúskara –
fullorðna. Ekki börn og unglinga.
Sem
barn og unglingur var tilfinningin sú að maður væri ekki neitt
sérstaklega velkominn á safnið, og það mátti hvorki heyrast
hósti né stuna. Bókasafnið minnti mig oft á grafhýsi þar sem
varðveittar voru bækur sem einungis fáir máttu lesa.
En
batnandi mönnum er best að lifa, og í dag er staðan allt önnur
og betri.
Bókasöfn
í dag eru lifandi og hlýlegir staðir, öllum opnir – þangað
eru allir velkomnir.
Þessar
breytingar tóku sinn tíma, en sem betur fer heyra úreldar og
leiðinlegar hugmyndir um bókasöfn sem stað fyrir fáa útvalda
fortíðinni til.
Í
dag er bókasafn ekki síst staður barna og unglinga, og þau finna
það sjálf; finna að þau eru velkomin. Og þangað sækja þau
líka í stórum stíl. Dvelja þar með vinum, skoða bækur og
önnur gögn, sér til gamans og fræðslu.
Á
bókasafninu er líka alltaf eitthvað í gangi. Í sumar, hjá okkur
í Hafnarfirði, var til dæmis sumarlestur barnanna, frá júní og
fram í miðjan ágúst, þar sem allir fengu umbun fyrir þátttökuna.
Þar eru börn hvött til lesturs, og ekki bara þau hraðlæsu –
hæglæs og lesblind börn eru hvött áfram, enda eiga þau
jafnmikið erindi á bókasafnið. Og úrvalið er mikið;
skáldsögur, ljóð, fræðsluefni, hljóðbækur, tímarit og
teiknimyndabækur, Andrésblöð og ég veit ekki hvað og hvað.
Allt sem ýtir undir aukinn áhuga á lestri er hið besta mál.
Þá
er vert að geta þess að börn og unglingar eru dugleg að koma á
safnið til að afla sér upplýsinga og heimilda varðandi
ritgerðarskrif og önnur verkefni í skólanum. Einnig er boðið
upp á sögustundir á barna- og unglingadeildinni, og leikskóla- og
grunnskólakennarar eru duglegir við að koma í heimsókn með
bekkina sína. Og þá er svo sannarlega líf og fjör á
bókasafninu, eins og það á að vera.
Í
gamla daga var stórt nei svarið við spurningunni: eiga börn og
unglingar erindi á bókasöfn?
Í
dag er svarið já. Já með stóru joði.
Í
dag er bókasafnið ígildi góðrar félagsmiðstöðvar, og það
kostar ekkert inn fyrir börn og unglinga.
Verið
velkomin, öll.
Svanur
Már Snorrason, þjónustufulltrúi á Bókasafni Hafnarfjarðar,
rithöfundur og fyrrv. ritstj.
(Morgunblaðið, 10. september 2013)
miðvikudagur, 11. september 2013
Sigmundur Davíð, hvað ætlarðu að gera?
Ég var ekki einn af þeim mörgu sem trúðu loforðum þínum, Sigmundur Davíð, í aðdraganda kosninganna, enda erfitt að trúa og treysta Framsóknarflokknum, flokki sem hampaði mönnum eins og Finni Ingólfssyni og Halldóri Ásgrímssyni – mönnum sem flestir vilja gleyma.
En þrátt fyrir að ég hafi ekki trúað fagurgala þínum, Sigmundur Davíð, gerðu margir Íslendingar það, og með honum vannstu ekki bara stórsigur heldur varð fagurgalinn þess valdandi að þú fórst alla leið í stól forsætisráðherra.
Að loknu leikriti eftir kosningarnar – sem flestir sáu að var bara lélegur farsi – myndaðirðu að sjálfsögðu stjórn með Sjálfstæðisflokknum, enda þægilegt að hafa góðan þingmeirihluta og fólk sem er að mestu leyti sammála þér í flestum málum. Já, kjósendur sögðu sitt og umboðið var þitt.
En hvað ætlarðu að gera, Sigmundur Davíð?
Ætlarðu að fara í sögubækurnar sem mesti svikari kosningaloforða Íslandssögunnar? Þar myndirðu tróna á toppnum í stórum og hræðilegum hópi, og þar mun þér kannski bara líða vel. Líkur sækir jú líkan heim.
Eða ætlarðu raunverulega að standa við loforð þitt um aðstoð við mörg bágstödd heimili landsins? Ertu maður orða þinna? Mér þætti gaman að sjá það, því sjálfur er ég láglaunamaður sem á í erfiðleikum með að ná endum saman um mánaðamót, og berst við að halda minni íbúð. Ætlarðu að gera eitthvað fyrir mig, þótt ég hafi ekki kosið þig?
Byrjun þín sem forsætisráðherra er sú versta og sorglegasta í sögu íslenska lýðveldisins, þrátt fyrir að í þeim efnum sé af nógu að taka. En batnandi mönnum er jú best að lifa, og best að klifa aðeins á frösunum – fall er faraheill, og allt það.
Byrjun þessi fólst í að draga öll kosningaloforðin í land og kenna gömlu stjórninni um hversu slæm staða ríkissjóðs væri; mun verri en þú áttir von á – þrátt fyrir að allar tölur væru uppi á borðinu og í raun öllum aðgengilegar. Nema þér og Bjarna Ben. Og ekki gleyma því að flokkum ykkar er hrunið alfarið að kenna – reyndu ekki einu sinni að þræta fyrir það – yrði þér einungis til minnkunar.
En aftur að byrjun þinni: Að sjálfsögðu var keyrt í gegnum þingið á ógnarhraða að gera þá vellauðugu enn vellauðugari, enda verður að passa vel upp á kvótafólkið. Það má auðvitað ekki missa spón úr aski sínum, þótt barmafullur sé.
En lítið hefur heyrst af loforðinu um lækkun skulda heimilanna – bara ekki neitt. Það loforð kom þér, Sigmundur Davíð, til valda, en ef þú stendur ekki við það verðurðu ekki lengi við völd. Almenningur mun sjá til þess.
Það er kannski ekki skrýtið að menn eins og þú og Bjarni Ben eigið erfitt með að samsama ykkur sauðsvörtum almúganum sem heldur uppi samfélaginu og bankakerfinu með hörku og dugnaði þótt lítið sé eftir í buddunni þegar búið er að borga af öllu. Þið tveir eruð moldríkir og hafið aldrei þurft að hafa neitt fyrir lífinu, og þekkið ekki basl né fjárhagsáhyggjur.
En þótt raunin sé sú er staðan engu að síður grafalvarleg fyrir ykkur og ríkisstjórnina. Í margar aldir voru Íslendingar kúgaðir og létu margt yfir sig ganga, og gera því miður enn. Hins vegar breyttist margt eftir hrun og búsáhaldabyltingin og mótmælin í október 2010 eru gott dæmi um það. Ég er hins vegar hræddur um að næsta skref í mótmælum verði töluvert öðruvísi en áður, og að við eigum eftir að horfa upp á mjög harða og jafnvel blóðuga byltingu, ef þú stendur ekki við stóru orðin, Sigmundur Davíð.
Svanur Már Snorrason þjónustufulltrúi á Bókasafni Hafnarfjarðar og fyrrv. ritstj.
(Greinin birtist í Fréttablaðinu og á Vísi, 22. ágúst, 2013)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)




