sunnudagur, 8. nóvember 2020

þriðjudagur, 3. nóvember 2020

Moppa


Hann skúrar í huganum. Með moppu myndskreyttri af Hergé, og sápulegi úr lakkrís og tönnum gamalla manna frá Albaníu og Indónesíu. Þeir fengu sér falskar.


laugardagur, 31. október 2020

Úr gamalli þjóðvísu

 


þegar október er búinn byrjar nóvember aftur

föstudagur, 30. október 2020

Gyrðir Elíasson

 


Gyrðir er í raun pre Sigur Rós ...

Harpa Rut Harðardóttir

þriðjudagur, 27. október 2020

Túlípanar

 

"Þetta snýst allt um eftirspurn. Appelsínuhúð eða eðalbókmenntir. Let´s face it." (Höf. ókunnur)


sunnudagur, 11. október 2020

Andstæðan við gott


"Það er alveg sama hvaðan gott kemur - en hvaðan andstæðan við það góða kemur er alltaf svo augljóst, og það er frekar fúlt." (Höf. Anita Pallenberg)


miðvikudagur, 30. september 2020

Vinur minn eignast Dreka


Vinur minn eignast Dreka og einhverjir karakterar sem getur varla liðið vel eða lifað innihaldsríku lífi agnúast út í skúringar heima hjá mér. Veðrið er æðislegt, ég hlusta á REM og skrifa viðtal við frábæran mann auk þess að knúsa mína frábæru fjölskyldu með minna en þriggja mínútna millibili.


sunnudagur, 13. september 2020

talandi brjóstsykurinn

"Þú slappst úr umbúðunum, þú verður ekki étinn," sagði alvitri sögumaðurinn með sinni dimmu röddu. "Já, það er rétt hjá þér, hjúkk," sagði talandi brjóstsykurinn og velti sér um á skítugu bílgólfinu rétt við kúplinguna. Það mátti greina létti í röddu hans sem var í skrækari kantinum.