þriðjudagur, 21. ágúst 2018

laugardagur, 28. júlí 2018

Arctic Monkeys - Four Out Of Five (Official Video)


lífið er eins og þorskur
en þó alls ekki á þurru landi
miklu fremur sem mjólkurhristingur í vefnaðarvöruverslun

fimmtudagur, 19. júlí 2018

laugardagur, 14. júlí 2018

Smell

Hann stimplaði sig inn. Fannst lyktin skrýtin. 

"Það er loksins búið að kaupa nýtt lyktarsprey", heyrði hann kallað úr eldhúsinu. 

Hann andaði léttar - nýjar og skrýtnar lyktir vöktu alltaf með honum grun um að rok og rigning myndu ráða ríkjum í veðrinu næstu misserin. Nú vissi hann að þetta yrði góður dagur - mögulega nokkrir góðir dagar framundan og að hann þyrfti ekki að kaupa sér ljósakort eða vikuferð til Króatíu.

sunnudagur, 17. júní 2018

Sugar Mountain

týndu af trénu óskir mínar
settu í frysti
affrystum er ég kem heim
þú færð eina tvær
en ég fæ þig

laugardagur, 12. maí 2018

Mannlýsing

Hann hefði átt að vera uppi á nýbylgjutímabilinu - mikið málaður, með eyrnalokk og sætur og fallegur eins og söngvarinn í Human League. Kvenlegur, en samt með öll helstu einkenni karlmanns.