fimmtudagur, 19. júlí 2018

laugardagur, 14. júlí 2018

Smell

Hann stimplaði sig inn. Fannst lyktin skrýtin. 

"Það er loksins búið að kaupa nýtt lyktarsprey", heyrði hann kallað úr eldhúsinu. 

Hann andaði léttar - nýjar og skrýtnar lyktir vöktu alltaf með honum grun um að rok og rigning myndu ráða ríkjum í veðrinu næstu misserin. Nú vissi hann að þetta yrði góður dagur - mögulega nokkrir góðir dagar framundan og að hann þyrfti ekki að kaupa sér ljósakort eða vikuferð til Króatíu.

sunnudagur, 17. júní 2018

Sugar Mountain

týndu af trénu óskir mínar
settu í frysti
affrystum er ég kem heim
þú færð eina tvær
en ég fæ þig

laugardagur, 12. maí 2018

Mannlýsing

Hann hefði átt að vera uppi á nýbylgjutímabilinu - mikið málaður, með eyrnalokk og sætur og fallegur eins og söngvarinn í Human League. Kvenlegur, en samt með öll helstu einkenni karlmanns.

miðvikudagur, 18. apríl 2018

Í Dvergríkinu

Ég mætti andstöðu í Dvergríkinu og fiskar hjóluðu þar um á trampólínum. Á haugunum voru böllin haldin, í gámum merktum Prinsessa. Á laugardögum var alltaf gott veður, enda var búið að kjósa um það. Heimilt var að gera styrktaræfingar á mánudögum, en aðrir dagar voru lánaðir.

sunnudagur, 1. apríl 2018