sunnudagur, 10. júlí 2016

Gítarleikarinn

Gítarleikari hljómsveitarinnar keyrði hana áfram og sá til þess að hún lagði aldrei upp laupana. Til þess þurfti hann oft að vera leiðinlegur og grimmur. Hinir í hljómsveitinni vissu að það sem gítarleikarinn væri að gera héldi þeim saman og þess vegna báru þeir virðingu fyrir honum.

sunnudagur, 5. júní 2016

San Jose

Alltaf þegar ég fékk tár í augun safnaði ég þeim saman í krukku og geymdi til betri tíma. Svo rétt áður en ég þurfti virkilega á þeim að halda var krukkunni stolið og besti vinur minn skipti um skóla. Hann varð seinna ráðherra og giftist verkfræðing.

mánudagur, 18. apríl 2016

Grindavík - vor 2016: Í Dvergríkinu

Ég mætti andstöðu í Dvergríkinu og fiskar hjóluðu þar um á trampólínum. Á haugunum voru böllin haldin, í gámum merktum Prinsessa. Á laugardögum var alltaf gott veður, enda var búið að kjósa um það. Heimilt var að gera styrktaræfingar á mánudögum en aðrir dagar voru lánaðir.