föstudagur, 18. nóvember 2011

Eir-kvót 17


Mundi allt í einu eftir þessu Eir-kvóti - og þá er auðvitað skellt í færslu ...

"Over my dead body."

Eir í símtali við vinkonu fyrrum fegurðardrottningar sem var að fara að giftast fótboltakappa utan af landi. Held þau séu að skilja núna og í forræðisdeilu. Fegurðardrottningin lét vinkonuna hringja í Eir og bjóða honum að fá leyfi til að senda ljósmyndara og taka myndir annaðhvort í kirkjunni eða fyrir utan, eða bæði, gegn greiðslu. "Over my dead body," var svarið sem hún fékk. Og gerði þetta svar góðan dag enn betri. Í framhaldinu tók fegurðardrottningin (og kannski fótboltakappinn) upp á því að fá einhverja gaura til að skýla verðandi fyrrum hjónunum með regnhlífum gegn ljósmyndurum - og er það ein hlægilegasta uppákoma síðari ára á Íslandi, og af nógu er af taka í þeim efnum. Góðar stundir.

Plakat b

miðvikudagur, 16. nóvember 2011

fimmtudagur, 10. nóvember 2011

miðvikudagur, 9. nóvember 2011

miðvikudagur, 19. október 2011

föstudagur, 14. október 2011

þriðjudagur, 11. október 2011

Opnan sem fór næstum í ruslið. Topptúttur þótti of gróft ...



Það var nú ekki oft sem stöðva þurfti það sem við Eiríkur Jónsson brölluðum saman, en þessi opna er eitt af fáum dæmum um það - og kannski voru þau ekki fleiri. Veit ekki hver stöðvaði birtinguna en sem betur fer bjargaðist opnan á einhvern hátt. Og hér er hún, mörgum árum eftir að hún átti að birtast í Séð & heyrt - kominn tími til. Svo er bara að finna blaðið og athuga hvað var sett í staðinn fyrir "Topptútturnar". Góðar stundir,

Svanur